Legal notice

Xocóatl er rekið af Griffin & Jónsson ehf., kt. 6012222560 vsk. 147346

​Xocóatl áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Skilmálar þessir gilda um allar pantanir hjá Xocóatl.

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum xocóatl.is til neytanda.  Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu.

​

​Súkkulaðiklúbburinn

​Tilgangur samkomulagsins er að Súkkulaðiklúbburinn selji kaupanda áskrift að mánaðarlegri sendingu af súkkulaði, 6 plötur sem vega milli 90 til 100 grömm.

Samningur þessi tekur gildi við stofnun notanda á vefsíðunni Xocoatl.is

Samningur þessi er uppsegjanlegur með 1 mánaðar fyrirvara.

Uppsögnin skal miðast við 20. hvers mánaðar, sömuleiðis skal fólk að skrá sig í klúbbinn fyrir 20. hvers mánaðar til að vera með í næstu sendingu.

Sendingum eru dreift 11. hvers mánaðar eða næsta virka dag ef 11. dagur mánaðar lendir á helgi.

Kaupandi skal greiða mánaðargjald fram að þeim tíma þegar samningur fellur úr gildi.

Vilji kaupandi segja upp samningnum ber honum að gera það inni á vefsvæðinu sínu á xocoatl.is eða í gegnum tölvupóst xocoatl@xocoatl.is

Það er á ábyrgð kaupanda að segja upp áskrift.

​

Mánaðarlegt gjald í Súkkulaðiklúbbnum er 3.990 kr. með VSK. Innifalið í því gjaldi er sendingargjald. Takist ekki að rukka kort verður stofnuð krafa í heimabanka viðkomandi.

Ekki er hægt að endursenda/skila súkkulaðinu eða fá endurgreitt. Mikilvægt er að afskrá sig tímanlega. Þetta er tilkomið vegna þess að við þurfum að panta súkkulaði miðað við fjölda meðlima hverju sinni.

​

Afhending vöru

Pantanir eru sendar á næsta Droppstað eða heim að dyrum. Pantanir eru afgreiddar næsta virka dag. Allar sendingar eru með rekjanlegu sendingarnúmeri frá Dropp.

Pöntunum er dreift af Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropps um afhendingu vörunnar.

​

Verð sendingarinnar:

Höfuðborgar­svæðið                                                                                                          790 kr.

Aðrir staðir                                                                                                                         990 kr.

Samdægurs heimsendingar:

Höfuðborgar­svæðið                                                                                                       1.350 kr.

Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn   1.450 kr.

Aðrir staðir sendingar með Samskipum skv. Dropp                                                     1.450 kr.

​

​Skilafrestur

Hægt er að skila vörum til okkar ef varan er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband við okkur í xocoatl@xocoatl.is

​

Kaupandi hefur 7 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef skila eða skipta á pöntun hjá Xocóatl. Útsöluvörum/tilboðsvörum fæst ekki skilað nema annað sé tekið fram í lýsingu við tiltekna vöru . Vinsamlega hafið samband á xocoatl@xocoatl.is ef frekari spurningar vakna.

​

Endursendingar skal senda á pósthús merkt:

​

Griffin&Jónsson ehf.

Xocoatl

Jöklafold 43

112, Reykjavík

​

Verð

Athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

​

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila. Greiðsla fer fram á öruggri greiðslusíðu Teya.

Teya/SaltPay áður Borgun sér um alla meðhöndlun á kreditkortum og kortaupplýsingum.