Privacy policy

Xocóatl er rekið af Griffin & Jónsson ehf., kt. 6012222560 vsk. 147346

Xocóatl áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Skilmálar þessir gilda um allar pantanir hjá Xocóatl.

Þessir skilmálar gilda um sölu á vörum xocóatl.is til neytanda.  Skilmálarnir eru staðfestir með staðfestingu á kaupum og greiðslu fyrir viðskiptin. Öll viðskipti eru trúnaðarmál og við tryggjum viðskiptavinum okkar örugg viðskipti á netinu.

 

Súkkulaðiklúbburinn

Tilgangur samkomulagsins er að Súkkulaðiklúbburinn selji kaupanda áskrift að mánaðarlegri sendingu af súkkulaði, 6 plötur sem vega milli 90 til 100 grömm.

Samningur þessi tekur gildi við stofnun notanda á vefsíðunni Xocoatl.is

Samningur þessi er uppsegjanlegur með 1 mánaðar fyrirvara.

Uppsögnin skal miðast við 20. hvers mánaðar, sömuleiðis skal fólk að skrá sig í klúbbinn fyrir 20. hvers mánaðar til að vera með í næstu sendingu.

Sendingum eru dreift 11. hvers mánaðar eða næsta virka dag ef 11. dagur mánaðar lendir á helgi.

Kaupandi skal greiða mánaðargjald fram að þeim tíma þegar samningur fellur úr gildi.

Vilji kaupandi segja upp samningnum ber honum að gera það inni á vefsvæðinu sínu á xocoatl.is eða í gegnum tölvupóst xocoatl@xocoatl.is

Það er á ábyrgð kaupanda að segja upp áskrift.

 

Mánaðarlegt gjald í Súkkulaðiklúbbnum er 3.990 kr. með VSK. Innifalið í því gjaldi er sendingargjald. Takist ekki að rukka kort verður stofnuð krafa í heimabanka viðkomandi.

Ekki er hægt að endursenda/skila súkkulaðinu eða fá endurgreitt. Mikilvægt er að afskrá sig tímanlega. Þetta er tilkomið vegna þess að við þurfum að panta súkkulaði miðað við fjölda meðlima hverju sinni.

 

Afhending vöru

Pantanir eru sendar á næsta Droppstað eða heim að dyrum. Pantanir eru afgreiddar næsta virka dag. Allar sendingar eru með rekjanlegu sendingarnúmeri frá Dropp.

Pöntunum er dreift af Dropp og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Dropps um afhendingu vörunnar.

 

Verð sendingarinnar:

Höfuðborgar­svæðið                                                                                                          790 kr.

Aðrir staðir                                                                                                                         990 kr.

Samdægurs heimsendingar:

Höfuðborgar­svæðið                                                                                                       1.350 kr.

Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn   1.450 kr.

Aðrir staðir sendingar með Samskipum skv. Dropp                                                     1.450 kr.

 

Skilafrestur

Hægt er að skila vörum til okkar ef varan er óskemmd og óopnuð í upprunalegum umbúðum og kvittun fylgir með. Ef um gallaða vöru er að ræða skal hafa samband við okkur í xocoatl@xocoatl.is

 

Kaupandi hefur 7 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum og upprunalegum umbúðum. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Kaupandi greiðir sendingarkostnað ef skila eða skipta á pöntun hjá Xocóatl. Útsöluvörum/tilboðsvörum fæst ekki skilað nema annað sé tekið fram í lýsingu við tiltekna vöru . Vinsamlega hafið samband á xocoatl@xocoatl.is ef frekari spurningar vakna.

 

Endursendingar skal senda á pósthús merkt:

 

Griffin&Jónsson ehf.

Xocoatl

Frostafold 6

112, Reykjavík

 

Verð

Athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

 

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila. Greiðsla fer fram á öruggri greiðslusíðu Teya.

Teya/SaltPay áður Borgun sér um alla meðhöndlun á kreditkortum og kortaupplýsingum.